Þetta var ágætis helgi hjá okkur hjónum. Við tókum okkur margt fyrir hendur, þrifum og keyptum inn og þvoðum þvott og elduðum alveg dýrindis mat. Þetta er í fyrsta skipti mjög lengi þar sem ég hugsa ekkert um vísindi í tvo daga í röð og það var ansi endurnærandi. Veitir ekki af því að nú fer greinin bráðum að koma úr ritrýni og næstu mánuðir verða því frekar klikk...
Við fórum á safn í gær sem hýsir list frá Himalayafjöllunum. Það var mjög gaman og eiginlega bara afslappandi því það var lítið að gera, þrátt fyrir rigninguna. Við náðum nú aðeins að skoða brot af þessu safni, en ætlum að skella okkur aftur bráðlega.
Jæja, best að byrja að blogga aftur! Það var ekki mikið bloggstuð á mér undanfarnar tvær vikur, en nú er lífið nokkurn veginn komið í fastar skorður aftur, Mörðurinn orðinn bara þónokkuð hress og kátur og allt eins og það á að vera. Og talandi um það, þá langaði mig að þakka fyrir öll ímeilin og símhringingarnar undanfarnar vikur að spurja um líðan karlsins, eitt stórt TAKK fyrir að hugsa til okkar =)
Annars er ekkert í fréttum svosem. Ég er köld inn að beini þessa stundina eftir að hafa varið bróðurparti dags inni í kæliherbergi að ómtvístra (er það ekki annars góð þýðing á sonication?) DNA. Sem betur fer á ég nóg af íslenskri ull sem heldur á mér hita, en hún náði þó ekki að halda mér heitri nema í klukkutíma. Ég þarf nefnilega að sitja svo grafkyrr á meðan ég er að þessu. Annars myndast loftbólur....
Í kvöld er það svo gymmið bara og svo heim að borða og sofa. Vinna, éta, sofa, það er tilveran þessa dagana.
Júhú, Genes & Development hafa sent greinina mína til ritrýnenda. Nú fá þær bara góða strauma frá mér, konurnar sem rýna í hana (sko, við mæltum bara með konum sem ritrýnendum, Girl Power!). Gvöð, það væri svo gaman að fá greinina birta í svona flottu tímariti. Plís, krossiði puttana fyrir mig.
Annars hangi ég bara hérna á netinu og skoða greinar frá löbbum sem ég gæti hugsað mér að póstdokka á. Ætti kannski frekar að vera að vinna, en maður getur alltaf unnið, er það ekki?
Voðalega er ég þreytt á fólki sem kvartar yfir flugeldum um áramótin. Kommon. Þetta eru bara nokkur kvöld á ári þar sem skotið er upp flugeldum, ég held það sé nú í lagi! Eyrnatappar fást líka fyrir lítinn pening úti í apóteki. Ég er líka frekar þreytt á fólki sem hneykslast á peningunum sem í þetta fara. Mér finnst bara ekkert að því að taka þátt í þessari flugeldaklikkun, mér finnst hún kúl.
Þetta var tuð dagsins, inspírerað af ónefndum bloggfærslum.
Jamm. Foringjafundur dagsins afstaðinn. Við ræddum mikið og skröfuðum um framtíðartilraunir. Ég er með fiðring í maganum ég hlakka svo til að gera þær allar. Nú fer ég að vinna í meiri frumurækt og gera fleiri lífefnafræðilegar tilraunir. Jibbí kóla!
Foringinn sagði mér reyndar líka að ef ég vildi útskrifast með lágmarks-vinnu, þá væri ég búin að gera nóg, hún gæti útskrifað mig með því sem ég er búin að gera. En fjörið er rétt að byrja og ég vil ekki ganga frá hálfkláruðu verki. Ég þarf meiri þjálfun í skemmtilega dótinu áður en ég fer að póstdokka.
Á næstu vikum ætla ég því að gera ChIP (Chromatin ImmunoPrecipitation), meira qPCR (quantitative Polymerase Chain Reaction) og svo rækta bæði mannahúð og músahúð í krukku.
Jæja, þá er röðin komin að jóga dagsins. Höfuðstaða verður reynd í kvöld en ég get hana bara upp við vegg.
Ég kom nokkrum hlutum í verk í dag þrátt fyrir almenna leti. Ekki sem verst!
Það eru engin takmörk fyrir leti minni í dag. Ég nenni bókstaflega engu. Alls engu. Ég var ekki mætt í vinnuna fyrr en klukkan ellefu. Fannst meira spennó að taka til heima hjá mér í morgun en að skipuleggja tilraunir. Og nú hangi ég bara hér við tölvuna og mana mig upp í greinalestur. Það er samt pínu kósí að sitja bara hér með ljúfa tóna Sufjan Stevens í eyrunum og bara....
Það var uppselt á Darwin í gær, þannig að við fórum bara í búðir í staðinn og ég keypti mér svo sæta kápu. Svo bara slæptumst við og slæptumst og ég er bara enn að slæpast, svei mér þá!
Jæja, mætt í slaginn aftur eftir afslappandi helgi. Við tókum því bara rólega á gamlárskvöld, elduðum með Josh og Mel og skáluðum í kampavín á miðnætti. Í gær lágum við svo bara uppi í sófa og lásum og fórum svo út að borða á Henry's og lukum nýársdegi með því að horfa á þriller í smjómartinu.
Ég er hér á labbinu að plana áframhaldandi rannsóknir, frekar kúl, því ég fæ að gera svo skemmtilega hluti á næstunni og er með svo mörg járn í eldinum.
Ég ætla samt að hætta að vinna snemma í dag því Mörður er í áramótafríi. Við ætlum að skella okkur saman á The American Museum of Natural History. Þar ku vera stórgóð sýning tileinkuð honum Charles Darwin. Ég hlakka mest til þess að skoða vinnubækurnar hans, það var víst nægur tími á MS. Beagle til þess að dúlla sér við að skrifa nákvæmar athugasemdir í þessar bækur. Eitthvað sem maður ætti sennilega að taka sér til eftirbreytni.