Jæja, nú ættu Freyja og Finnbogi að vera að lenda. Þau koma með lestinni á eftir, en Mörður sækir þau út á völl. Ég er búin að vera að fikta í fótósjopp í mestallan dag, en gerði líka eina tilraun sem misheppnaðist. Hún verður bara endurtekin um helgina, ætti ekki að vera mikið mál...
Ég stefni á að vera búin að útbúa allar myndir á mánudagskvöldið (þessi misheppnaða tilraun er hluti af mynd 2) og þá er það bara handritið að greininni sem ég þarf að vinna í á þriðjudaginn og vonandi á miðvikudaginn sendum við greinina út. Úffedí, ég er frekar nervös yfir því....