Það er nú meira vesenið á lestar- og strætóbílstjórum hér í borginni. Ég er enn heima, eiginlega föst, af því að ég er með svo mikla hálsbólgu að ég get ekki hjólað í þessum kulda. Ég held ég nái sem betur fer rútu í vinnuna klukkan tvö, þannig að þetta tefur mig ekki mjög mikið.
Það stefnir í langt verkfall, ég vona að hálsbólgan verði betri á morgun svo ég geti hjólað á Trek-fáknum í vinnuna.
Þetta er nú frekar ævintýralegt samt, þetta er í fyrsta skiptið sem það er samgönguverkfall hér í 25 ár. Minnir pínu á stemninguna í rafmagnsleysinu mikla hér um árið.