Þriðjudagur, 20 desember, 2005
Bleh

Úff, nú erum það bara ég og foringinn á labbinu. Allir hinir eru heima vegna samgönguverkfalls, en hún á bíl og ég á hjól og því komumst við í vinnuna í dag. Við heppnar!

Ég sit hér sveitt við og laga textann við greinina mína til, en nú er þetta á lokasprettinum og við komnar í smáatriðapakkann, nú þarf allt að vera fullkomið. Greinin fer ekki út fyrir jól, en nú er stefnt á áramót. Úff, fyrst var það Þakkargjörðarhátíðin, svo jólin og nú áramótin, ég vona að þetta dragist nú ekki svo fram að páskum!

Og grey Mörður er heima veikur, með hálsbólgu og slef, og ekkert stuð í gangi. Þetta er ekkert sanngjarnt, þar sem hann tók sér frí til að vera með Binna og Mæju og er svo bara veikur. En hann hefði svosem ekki komist fet nema fótgangandi.

Posted by erna at 05:38 EH