Ég stend hér og dilla mjöðmunum við danstónlist við tilraunabekkinn minn. Er reyndar bara að gera Power Point skjal fyrir fyrirlesturinn minn, en ég var orðin þreytt á setunni svo ég skellti lappanum hér á bekkinn. Dúndur stuð í gangi!
En, svona af því að ég nenni ekki að halda áfram með presentasjónina skelli ég inn þessum leik hér:
Settu nafnið þitt í kommentakerfið og.....
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
5. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
6. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
8. Ef þú setur nafn þitt inn þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt..
Mér finnst aldrei jólalegt nema í myrkri, nánar tiltekið jólaseríu-upplýstu myrkri. Það er örugglega þess vegna sem mér finnst aldrei vera beint jólastemning í gangi hér í borg, jafnvel þrátt fyrir að hafa skellt í mig hrúgu af mat og víni í nafni þeirrar hátíðar á jólahádegisverði örverufræðideildarinnar í vikunni. Ó, sei, sei, nei.
En það verður nú samt vonandi hátíðlegt hjá okkur um jólin, nógu kalt á það minnsta kosti að verða. Finnbogi og Freyja koma fljúgandi með jólaskapið með sér á Þorlák. Það er búið að banna mér að elda, Finnbogi og hans börn munu sá um það. Kalkúnabringur verða það víst og svo rjúpur á annan. Þrátt fyrir að hafa alið manninn á Jökuldal sjö ár ævi minnar, hef ég ekki smakkað rjúpur frá því ég var í jólaboði hjá henni Ömmu Nennu minni heitinni, þannig að ég hlakka til. Finnbogi er líka svo klár að elda og afkvæmi hans ekki síðri í þeirri list.
Eins og það er næs að halda jól hér í borg, þá standa áramótin sjaldan undir nafni. Hér er nefnilega bannað að skjóta upp rakettum, nema að maður heiti Blúmberg. Meira að segja stjörnuljós eru bönnuð. Enga kínverja að fá í Kínabæ. En það nenna bara túrhestar að fara niður á Tæms Skver að horfa á þau herlegheit. Það er ekki góð skemmtun á gamlárskvöld að standa í þvögu og neyðast til að pissa í brúsa til að missa ekki góða staðinn sinn til að verða vitni að nýjárinu ganga í garð.
Ætli við reynum ekki bara að fara á góða tónleika og eitthvað skemmtó. Mig langar mest bara til að bóka mér hótel einhvers staðar með mjúku rúmi og þykkum gardínum og bara sofa í tvö daga. En þvílíka félagsfælni kemst ég nú sennilega ekki upp með á tímamótum eins og áramótum.