Föstudagur, 9 desember, 2005
Ég er að kabbna úr leiðindum....

Oh... þetta sökkar svo feitt. Það var gaman að skrifa greinina, en nú þegar það er búið er ég að gera booooorrrrrrrrrrrrrring hluti. Kópera og peista í Fótósjopp, búa til myndatexta og annað smáræðiskropp sem varla þarf að nota nema hálfa heilasellu í. Best að sturta sér bara niður. Og svo vill foringinn senda greinina í allt of hátt skrifað vísindatímarit. Ég vona að okkur verði ekki skúbbað á meðan við bíðum eftir fíddbakki frá því tímariti.
En það gæti verið verra, það gæti verið mikið verra. Það hefði til dæmis getað verið rigning í morgun en ekki unaðslega falleg snjókoma með stærstu snjókornum í manna minnum. Og það hefði líka getað verið blind bylur, ekki bara logndrífa og yndislegheit. Reyndar er orðið yfir bæði blind byl og logndrífu það sama á amrísku: Snow Storm. En kanar eru nú svo vitlausir hvort sem er.

Posted by erna at 04:00 EH