Fimmtudagur, 1 desember, 2005
Jæja, þetta er allt að skríða saman...

Ah... búin að skila inn fyrsta uppkasti að niðurstöðu-hlutanum af greininni minni, til foringjans. Ég lét hana fá innganginn á mánudaginn, þannig að nú er málið að demba sér í að skrifa umræður um niðurstöðurnar. Er reyndar búin að vera að vinna í því líka, mjúltítask á milljón.

Þegar ég byrjaði að vinna á þessu labbi fyrir tveimur og hálfu ári síðan, voru hér nokkrir mjög góðir nemar, sem hjálpuðu mér mikið og kenndu mér margt. Alla tíð síðan hef ég litið mjög upp til þeirra, en ég var eiginlega fyrst að átta mig á því núna, þegar ég sit við greinarskrif, því að ég er stöðugt að velta því fyrir mér hvernig Kristy hafi farið að hinu og Miriam að þessu og að bera mig saman við þessar kláru konur í huganum. Hvort ég stenst samanburðinn skal ég ekki segja, en það er gott að hafa fyrirrennara sem eru svona klárir, þannig að maður geti alltaf stefnt á að nálgast þeirra klárleika.

Posted by erna at 01:34 EH