Þriðjudagur, 29 nóvember, 2005
Ég hlakka til...

Að kaupa jólagjafir um helgina.
Þegar ég verð búin með labbfundinn minn í næstu viku.
Þegar ég klára að skrifa greinina mína (í næstu viku, vonandi).
Þegar ég verð búin með Örverufræðideildarfyrirlesturinn minn. (Voða formlegur klukkutíma fyrirlestur sem ég á að halda um verkefnið mitt þann 16. des.)
Þegar Veiran kemur í heimsókn.
Þegar Binni Remó og Mæja koma í heimsókn fyrir jólin.
Þegar tengdapabbi og Freyja mágkona koma til okkar um jólin.
Þegar það verður orðið skíðafært á Hunter og Greek Peaks.
Þegar Jeffrey verður búinn að laga á mér skrokkinn og ég get farið að hlaupa aftur.

Oh, hvað ég er heppin að hafa svona margt að hlakka til!

Posted by erna at 02:58 EH