Úff, ég er svo kvefuð að ég held að hausinn á mér springi bráðum úr hor. Ég sit hérna heima við greinaskriftir, skrópaði á labbið.
Á morgun er Þakkargjörðarhátíð hér í Ameríkunni, og allir eiga að vera voða þakklátir á meðan þeir borða kalkúninn sinn. Við Mo ætlum norður í Pennsylvaníu með Josh og Melissu, en fjölskyldur þeirra beggja ætla að halda þar saman gleðilegan kalkúnadag. Við hlökkum auðvitað svakalega til, enda verður þetta í fyrsta skiptið sem við munum upplifa svona ekta fjölskyldu þakkargjörðarfögnuð, með kvöldmat klukkan fjögur og tilheyrandi. Svo er "turkey and all the trimmings" uppáhaldsmaturinn minn, þannig að við erum ekki í vondum málum!