Föstudagur, 18 nóvember, 2005
Erfitt gaman

Jæja, nú lítur út fyrir að allt sé að smella saman hjá mér. Ég er búin að tvöfalda gagnamagnið í stúdíunni minni undanfarna tvo mánuði og nú fer þetta allt að taka á sig mynd. Það er ótrúlegt hvað þetta kemur allt í sprettum.
Ég er ekkert búin að vinna í sjálfri greininni undanfarnar þrjár vikur, bara leyft henni að liggja óopnaðri á tölvunni hjá mér, en nú er kominn tími til að skrifa aftur.
Það er bæði gaman og erfitt á sama tíma, en það er bara í takt við allt annað í þessum bransa, gaman og erfitt. Fínn kokkteill.

Posted by erna at 12:09 EH
Brrrr

Það var átján stiga hiti hér í borginni á miðvikudaginn, sem var ansi ljúft. Í fyrrakvöld kom hins vegar brjálað þrumuveður og tók með sér hitann, þannig að í gær var tíu gráðum kaldara. Í dag er svo kaldasti morguninn það sem af er haustsins, sléttar núll gráður á Celsíuskvarða. Nú má fyrir alvöru fara að kalla þessa árstíð haust, og mig grunar að veturinn feli sig handan hornsins....

Posted by erna at 08:15 FH