Það er kannski ekki margt að gerast hjá mér þessa dagana utan vinnutíma, en líf mitt er hins vegar stappfullt af góðri tónlist.
Aníma er algerlega að meika það í mínum heimi þessa dagana. Stelpur, þið eruð frábærar. Eini gallinn við diskinn er hvað hann er stuttur!
Svo er Bloc Party líka í uppáhaldi þessa dagana. Svo voðalega níundaáratugs-Cure-legir eitthvað.
Clap Your Hands and Say Yeah, eru ekki slæmir. Eiginlega væri ég til í að hafa þá á rípít í eyrunum allan daginn. Ég stóð mig að því að vera farin að dansa og dilla mér í gymminu í takt við tónlistina þeirra fyrr í kvöld. Yndislegt alveg hreint!
Nýi Sondre Lerche diskurinn er þrusugóður líka, ekki jafngóður og sá gamli kannski, en fínn samt.
Takk er búinn að fá slatta spilun undanfarnar vikur, enda það besta sem Sigur Rós hefur gert síðan Ágætis Byrjun varð til hér um árið.
Svo eru náttúrulega óld feivorits eins og The Kings of Convenience og Turin Brakes alltaf á annað slagið, enda er slatti mikið af tónlist sem spila má á einum löngum vinnudegi.
Ég segi bara húrra fyrir því að eiga eiginmann og vinnufélaga (í eintölu, en hún er mín megin á labbinu) með góðan tónlistarsmekk!
Uppfært kl. 21:53, Mörður setti Clap Your Hands and Say Yeah í spilarann og mér finnst ég bara verða að byrja að hoppa í takt við tónlistina. Sjiiiiitttt það er langt síðan ég hef heyrt nokkuð svona gott. Þeir eru sjúúúúúúklega góúúððirrrrrrrrrrrrrrrrrr
Uppfært kl. 21:56, Þeir fá mig til þess að langa að fara í brjálað partí að daaaannsssssaaaaaa!
Jæja. Datakúbburinn afstaðinn og best að fara að framkvæma alvöru vinnu. En eins og ég er oft pirruð yfir því að þurfa alltaf að vera að framkvæma svona data-gjörninga, er ég líka glöð yfir því að fá þessa talþjálfun. (Hah.. þið hélduð ekki að ég þyrfti á talþjálfun að halda er það?).
Annars er allt bara í gúddí, svei mér þábarasta!