Fimmtudagur, 27 október, 2005
Labbfundur

Jæja, þá er maður búinn að halda labbfund fyrir þennan mánuðinn. Við erum orðin svo fá eftir á labbinu að tíðni labbfunda hefur aukist stórlega. Það er að segja tíðni labbfunda á einstakling.... Við erum með labbfund á hverjum fimmtudagsmorgni og við skiptumst á að sýna gögnin okkar þar. Fyrir tveimur og hálfu ári, þegar ég byrjaði fyrst að vinna á labbinu hélt ég labbfund á um það bil fimm mánaða fresti, en núna held ég labbfund á fimm vikna fresti.

Það gefur því auga leið að ég var með lítið af nýjum gögnum, en blaðraði bara þeim mun meira um gömlu gögnin mín og aðferðafræðina á bak við það sem ég er að gera í augnablikinu. Ég hef aldrei áður haldið labbfund án þess að vera með neinar nýjar niðurstöður handhægar.

Og nú er það bara harkan sex í myndvinnslu fyrir greinina, fram á mánudag, en þá fæ ég niðurstöður úr microarray-gagavinnslunni. Spennó, spennó, spennó!

Posted by erna at 12:23 EH
Laugardagur, 22 október, 2005
Svona dæmigerð "ég er á lífi" færsla

Þið hélduð ekkert að ég væri dauð var það?

Ég væri sko alveg til í að vera á hvítum hraðbáti niðri við höfn með systur minni að flissa og láta vindinn leika um hárið á mér.

Ég er reyndar búin að vera þar andlega annað slagið, því að þegar stressið hefur náð á mér heljartaki undanfarna viku hef ég kallað þessa mynd upp í huga mér og þá veit ég að allt fer vel að lokum.

Við hjónin erum búin að vera heima í allan dag, Mörður í aukaverkefni til að safna sér fyrir nýjum græjum, og ég er búin að sitja hér í sófanum með tölvuna í kjöltunni og láta gamminn geisa í fyrstu vísindagreinina mína. Þetta er í fyrsta skiptið í margar vikur þar sem við erum bara tvö hérna að bjástra saman heima og það er búið að vera svo notalegt að sitja hér með góða tónlist í eyrunum og rigningu fyrir utan gluggann og spjalla smá saman annað slagið, borða bröns úti á horni og bara svona ná andanum saman.

Næsta vika verður líka pínu geðbiluð sko. En vonandi á góðan hátt, jábarasta, það skal verða á góðan hátt og hana nú!

Posted by erna at 09:08 EH
Sunnudagur, 16 október, 2005
Kanntu brauð að baka?

Ég var að enda við að klára þennan netleik. Þetta er stúdía hjá doktorsnemum við MIT um það hvernig fólk hefur samskipti við vélmenni. Leikurinn gengur út á það að kenna vélmenninu Soffíu að baka köku.
Ansi sniðugt og hentar vel fólki með frestunaráráttu. Sérstaklega vegna þess að við að leika þennan leik stuðlar fólk að framgangi vísindanna. Það er varla til betri afsökun fyrir verkfrestun.

Posted by erna at 02:40 EH
Föstudagur, 14 október, 2005
Ó mæ god!

Púff.. mig langar til þess að trúa því að vídejóið á þessarri síðu sé falsað, en mig grunar ekki.... (Ýtið á watch now undir Video).

Posted by erna at 05:46 EH
Mánudagur, 10 október, 2005
Ég er fátæk í ensku

Að minnsta kosti vísindaensku. Ég er að skrifa greinina mína og ég kemst ekki yfir það hvað fyrsta uppkastið hljómar svakalega talmálslega. Það pirrar mig eiginlega smá. En, ég á náttúrulega eftir að vinna svakalega í þessum texta og þá kemur þetta allt saman. Í næstu viku verður þetta örugglega orðið að uppskrúfuðum fræðitexta með tilheyrandi orðskrúði, latínuslettum og tilvitnunum í fræga fræðimenn. Sjáum bara til....

(ps. Hvort talar maður um að mýs fæðist "at the mendelian ratio eða ratios?" Má maður ráða. Mér finnst líka asnalegt að nota ekki upphafsstafi í orðunum mendelian, Southern (blot) og svo framvegis. (Er ég algerlega undir áhrifum ástkæra ylhýra?)

Posted by erna at 10:02 EH