Jæja, þá er maður búinn að halda labbfund fyrir þennan mánuðinn. Við erum orðin svo fá eftir á labbinu að tíðni labbfunda hefur aukist stórlega. Það er að segja tíðni labbfunda á einstakling.... Við erum með labbfund á hverjum fimmtudagsmorgni og við skiptumst á að sýna gögnin okkar þar. Fyrir tveimur og hálfu ári, þegar ég byrjaði fyrst að vinna á labbinu hélt ég labbfund á um það bil fimm mánaða fresti, en núna held ég labbfund á fimm vikna fresti.
Það gefur því auga leið að ég var með lítið af nýjum gögnum, en blaðraði bara þeim mun meira um gömlu gögnin mín og aðferðafræðina á bak við það sem ég er að gera í augnablikinu. Ég hef aldrei áður haldið labbfund án þess að vera með neinar nýjar niðurstöður handhægar.
Og nú er það bara harkan sex í myndvinnslu fyrir greinina, fram á mánudag, en þá fæ ég niðurstöður úr microarray-gagavinnslunni. Spennó, spennó, spennó!