Fimmtudagur, 29 september, 2005
Eymingjablogg

Tjáh, skyldu ekki bara vera liðnar liðlega tvær vikur frá síðasta bloggi. Svei mér þá!

Það er hins vegar ekki alveg að ástæðulausu, því ég komst að því fyrir tveimur vikum síðan að ríkasti og frægasti dermatólógíuprófessorinn vestan Atlantsála er að vinna að nákvæmlega sama verkefni og ég. Nú er það að duga og drepast, annað hvort skúbbar maður eða verður skúbbað. Ég vil heldur skúbba.

Það er því ákveðin sturlun búin að ríkja í þessum herbúðum undanfarnar vikur, unnið 14-18 tíma á sólarhring á fullu spani. Það er ekkert sem mótíverar mann meira heldur en tilhugsunin um póstdokk við vinnu 20 km frá manni, að sama verkefni.

En, eins og Hérastubbur bakari sagði á sínum tíma; "Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð vont" (eða, var það kannski gott). Ég er loksins að fá duglega fjárveitingu frá yfirvaldinu í verkefnið mitt. Við stefnum á Affychip í næstu viku og svo er ég komin með samstarfsaðila í Japan sem ætlar að gera rafeindasmásjárgreiningu fyrir mig.

Þannig að ef að ég skúbba, og verður ekki skúbbað, þá gæti þetta bara flýtt fyrir því að ég fái stafina tvo langþráðu fyrir framan nafnið mitt.

Posted by erna at 06:13 EH
Miðvikudagur, 14 september, 2005
Æ, teik itt bakk

Ég djingxaði sjálfa mig algerlega í morgun með því að lýsa einhverri veðurblíðuparadís. Það er ógeðslega rakt í dag. En ekkert svo heitt. En samt bara stikkí og ógeð og þeirra félagar....

Posted by erna at 03:39 EH
Mandarína

Ef ég gæti valið eitt tungumál sem ég myndi kunna í viðbót, þá held ég að það væri mandarin. Ég ætti kannski bara að læra mandarin. (Hvað heitir mandarin á íslensku?). Ef ég kynni mandarin myndu mér opnast nýir samskiptaheimar. Af hverju ætti maður alltaf að sætta sig við að tala við fólk á tungumáli sem er hvorki móðurmál þess né manns sjálfs?

Posted by erna at 01:02 EH
Takk

Ég sit hérna heima í rólegheitum og borða hafragautinn minn og hlusta á Takk. Hljómar bara þokkalega vel, en það er náttúrulega aldrei neitt að marka fyrstu hlustun. Ég held samt að Ágætis Byrjun verði alltaf uppáhaldið mitt....

Rútínan hjá mér er komin í klessu af því að ég hef þurft að vera á labbinu framyfir miðnætti síðustu tvö kvöld, eða, ég þurfti að mæta aftur eftir Sigur Rósar tónleikana og svo aftur þegar ég var búin í gymminu í gær. Púff, frekar pirrandi, ég er ekki búin að sjá Mörð vakandi síðan í fyrrakvöld. En svona er þetta bara stundum og ekkert verður við það ráðið.

Annars er líka bara búið að vera svo næs veður hérna undanfarið að það er þvílíkt svekk að þurfa að vinna yfir höfuð. Það er alltaf best í september þegar rakinn er dottinn niður og hitinn heldur sig á milli 25-30 gráðanna. Það munar samt mest um rakann. Það sést svo vel á útsýninu út um gluggann á labbinu hjá mér, en í sumar sáust Emipire State og félagar bara í móðu eins og fjallabelti í fjarska, en þessa dagana sé ég næstum því Frelsisstyttuna... (tjah, kannski ekki alveg, en næstumþví....).

Posted by erna at 09:58 FH
Þriðjudagur, 13 september, 2005
Victory Rose

Já, við fórum á snilldartónleika með Rósu í gær. Þau klikkuðu ekki frekar en fyrri daginn. Mér líst sérstaklega vel á lögin af nýja diskinum þeirra, Takk. Sá diskur kom ekki út hér í BNA fyrr en í dag, þannig að ég bíð óþreyjufull eftir að fá hann í hendurnar. Í huganum skoraði ég á hljómsveitina að koma mér á óvart með nýju tónlistinni, og ég held svei mér þá að þau hafi gert það.

Sjóið er líka allraf flott hjá þeim. Josh og Melissa voru alveg dolfallin, höfðu bara aldrei séð neitt þessu líkt.

Aníma hitaði upp, mig langar líka í diskinn þeirra, en við fórum út bakatil, þannig ða ég náði ekki að kaupa hann...

Posted by erna at 01:22 EH
Klessuplast

Æ, mig auma. Lífið er allt komið í klessu af því að bakið á mér er í hönk. Það er svo margt sem maður tekur sem sjálfsögðum hlut í þessum heimi. En Jeffrey (Tribiani) ætlar að kýla olnboganum á sér í afturendan á mér á fimmtudagsmorguninn. Kannski hjálpar það.

Posted by erna at 12:31 EH
Laugardagur, 10 september, 2005
Ég er 'ann

Herdís klukkaði mig. Hér koma fimm hlutir af handahófi um sjálfa mig:

1. Ég er með þrjár geirvörtur. Ein er enn jafnlítil og þegar ég var smákrakki.

2. Ég er bara með tuttugu og sjö tennur. Ein framtönnin í neðri gómi kom aldrei. Ég held hún hafi ruglast og haldið að hún væri geirvarta og farið út á vitlausri stoppistöð.

3. Ég er mjög skapstór manneskja. Ég held að það sé ástæðan fyrir því að ég verð að fá útrás í "high intensity" hreyfingu eins og spinning og hlaupum, til að losa alla orkuna út.

4. Þegar ég var átta ára ákvað ég að þegar ég yrði stór, ætlaði ég að vinna vinnu þar sem ég gæti notað smásjá. Í dag vinn ég vinnu þar sem ég nota smásjá mjög mikið. Gallinn er bara sá að ég verð "sjóveik" á því að nota smásjá, þannig að mér finnst það ekki jafngaman og þegar ég fékk að skoða þvagprufuna mína í smásjá á heilsugæslunni á Höfn í Hornafirði þegar ég var átta ára.

5. Mér finnst bakhár sexí.

Hmmm... Og þá er komið að því að klukka: Ásthildur, Ella Maja, Sunna, Mummi og Veira. Klukk, þið eruð 'ann.

Posted by erna at 12:16 EH
Föstudagur, 9 september, 2005
Nördar

Hún og hún eru greinilega að fara á sömu félagsmiðstöðina í desember. Virðist stefna í brjálaðan Íslendinga-jarðfræðingahittíng! Maður ætti kannski að reyna að smala Íslendingum á næstu dermatólógíuráðstefnu og hafa alvöru partí með brennivíni og hákarli....Philadelphia, in May, anyone?

Posted by erna at 08:08 EH
Þynnka

Úff, það var aðeins of gaman í gær og ég borga fyrir það í dag! Það stefnir í langan dag á labbinu, en það er þess virði, ég er að vinna að tilraun til að svara stórri spurningu í verkefninu mínu og ég er mjög spennt. Reyndar fæ ég ekki niðurstöðuna fyrr en á sunnudaginn... Bissí helgi framundan sumsé. En Guðný, engin þrif, bara svo þú vitir það ;)

Posted by erna at 03:39 EH
Fimmtudagur, 8 september, 2005
Hátíðarbrigði

Hún Tracy mín hélt doktorsfyrirlesturinn sinn áðan og er núna að verja. Á meðan bíðum við hin eirðarlaus, þangað til hún birtist á ný, heiðruð doktorsnafnbótinni.

Það er svo gaman á doktorsvarnardögum hér, allir klæða sig hátíðlega, fjölskylda og vinir doktorsefnisins mæta upppússuð og fín, en vita ekkert hvað þau eiga af sér að gera.

Klukkan fjögur verður svo veisla og svo verður skrall niðri í bæ frameftir kvöldi. Stuð!

Posted by erna at 01:50 EH
Frestunarárátta í hámarki...

Í augnablikinu er ég að fresta því að fara að sofa og er búin að hanga inni á hinum og þessum bloggum og kommenta misgáfulega og stend mig svo að því að tékka reglulega hvort bloggeigendur séu búnir að svara. En það er mið nótt á Íslandi og þetta voru flest íslensk blogg. Steik. Ég held ég sé komin með deliríum af þreytu.

Ég komst að því í dag að það er tvennt sem læknar allt.

Það fyrra er að vera að labba heim, frekar þreytt og niðurdregin, eftir að hafa flýtt mér í heilan dag til að komast til læknis klukkan hálfsjö en samt komið of seint, misst af læknatímanum, heilsugæslunni hafi verið lokað á nefið á mér (hey, hvað varð um hippókrates?) og heyra Mörð kalla til mín. Það er ótrúlegt hvað það rofar til í sálinni við að heyra sinn heittelskaða kalla til sín.

Það síðara er súkkulaði.

Ég kysi nú heldur það fyrra ef ég þyrfti að velja.


Posted by erna at 12:43 FH
Tomato gravy for biryani

Tomato gravy for biryani
Originally uploaded by ernam.

Ég stóðst bara ekki mátið og tók mynd af matnum sem ég var að elda í kvöld. Doktorsvörnin hennar Tracy er á morgun og ég eldaði biryani (indverskan hrínsgrjónarétt) fyrir veisluna. Með biryani-inu gerði ég svo til gerða tómat-hnetusósu sem leit svona svakalega vel út áður en ég kveikti undir pönnunni.
Posted by erna at 12:05 FH
Þriðjudagur, 6 september, 2005
Dead On!

Ég var að lesa þessa færslu hjá Palla og renndi svo í gegnum hluta af graffítíljósmyndasafninu hans. Þessi veggjaskreyting gæti ekki hitt betur í mark!

Posted by erna at 09:00 EH
Mánudagur, 5 september, 2005
Labor Day and Livin' is Easy...

Við erum búin að hafa það alveg svakalega næs um helgina. Þvílíkt afslappelsi í gangi bara. Ég vann á laugardagsmorguninn og svo fórum við í bæinn, keyptum þarflegt til heimilisins og fengum okkur sushi.

Í gær fór ég svo á grænmetismarkaðinn hér í götunni. Það er svo ótrúlega gaman að fara á þennan markað, sérstaklega síðsumars og á haustin. Grænmetið er svo fallegt og það virkar meira svona eins og alvöru grænmeti, af því að það er ekki staðlað í laginu eins og stórmarkaðsgrænmeti virðist oft vera. Ég keypti djúsí paprikur, maísstöngla, gula og græna tómata og svo svona erfðagripstómata (heirloom tomatoes). Og það var ekki vondur maturinn sem úr þessu eldaðist.

Ég fór líka í tásnyrtingu. Oh.. það er svo æðislegt! Mér líður alltaf eins og prinsessu þegar ég labba út af snyrtistofunni með velsnyrtar og lakkaðar tásur.

Í dag er ég svo búin að kúra uppi í sófa og lesa og er á leiðinni að hjóla í vinnuna. Svo ætla ég að sjálfboðaliðast með vinum mínum í bátahúsinu, fara aftur í vinnuna og svo að hitta stelpurnar í kvöld yfir gvuðdómlegri gazpacho súpu og smá flissi í eftirrétt.

Posted by erna at 11:13 FH
Fimmtudagur, 1 september, 2005
Lækker mad

Ég eldaði pönnusteiktan ufsa með tómat-geitaostagratíni (eiginlega bruschetta-gratíni), í gær og er að njóta þess núna. Allt innihaldið er lífrænt ræktað, nema kannski ufsinn, hann er reyndar sjóufsi, sko, ekkert ræktaður, en ég bara veit ekki hvernig fiskur er skilgreindur í sambandi við lífræna ræktun...

Annars er lífið bara gott, kayakróður undir sólsetur á Hudson verður spriklið í dag. Og svo aftur á laugardaginn. Ætli fæturnir fari ekki bara að detta af mér, ég nota þá svo lítið þessa dagana!

Posted by erna at 12:44 EH