Fimmtudagur, 29 september, 2005
Eymingjablogg

Tjáh, skyldu ekki bara vera liðnar liðlega tvær vikur frá síðasta bloggi. Svei mér þá!

Það er hins vegar ekki alveg að ástæðulausu, því ég komst að því fyrir tveimur vikum síðan að ríkasti og frægasti dermatólógíuprófessorinn vestan Atlantsála er að vinna að nákvæmlega sama verkefni og ég. Nú er það að duga og drepast, annað hvort skúbbar maður eða verður skúbbað. Ég vil heldur skúbba.

Það er því ákveðin sturlun búin að ríkja í þessum herbúðum undanfarnar vikur, unnið 14-18 tíma á sólarhring á fullu spani. Það er ekkert sem mótíverar mann meira heldur en tilhugsunin um póstdokk við vinnu 20 km frá manni, að sama verkefni.

En, eins og Hérastubbur bakari sagði á sínum tíma; "Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð vont" (eða, var það kannski gott). Ég er loksins að fá duglega fjárveitingu frá yfirvaldinu í verkefnið mitt. Við stefnum á Affychip í næstu viku og svo er ég komin með samstarfsaðila í Japan sem ætlar að gera rafeindasmásjárgreiningu fyrir mig.

Þannig að ef að ég skúbba, og verður ekki skúbbað, þá gæti þetta bara flýtt fyrir því að ég fái stafina tvo langþráðu fyrir framan nafnið mitt.

Posted by erna at 06:13 EH