Miðvikudagur, 14 september, 2005
Æ, teik itt bakk

Ég djingxaði sjálfa mig algerlega í morgun með því að lýsa einhverri veðurblíðuparadís. Það er ógeðslega rakt í dag. En ekkert svo heitt. En samt bara stikkí og ógeð og þeirra félagar....

Posted by erna at 03:39 EH
Mandarína

Ef ég gæti valið eitt tungumál sem ég myndi kunna í viðbót, þá held ég að það væri mandarin. Ég ætti kannski bara að læra mandarin. (Hvað heitir mandarin á íslensku?). Ef ég kynni mandarin myndu mér opnast nýir samskiptaheimar. Af hverju ætti maður alltaf að sætta sig við að tala við fólk á tungumáli sem er hvorki móðurmál þess né manns sjálfs?

Posted by erna at 01:02 EH
Takk

Ég sit hérna heima í rólegheitum og borða hafragautinn minn og hlusta á Takk. Hljómar bara þokkalega vel, en það er náttúrulega aldrei neitt að marka fyrstu hlustun. Ég held samt að Ágætis Byrjun verði alltaf uppáhaldið mitt....

Rútínan hjá mér er komin í klessu af því að ég hef þurft að vera á labbinu framyfir miðnætti síðustu tvö kvöld, eða, ég þurfti að mæta aftur eftir Sigur Rósar tónleikana og svo aftur þegar ég var búin í gymminu í gær. Púff, frekar pirrandi, ég er ekki búin að sjá Mörð vakandi síðan í fyrrakvöld. En svona er þetta bara stundum og ekkert verður við það ráðið.

Annars er líka bara búið að vera svo næs veður hérna undanfarið að það er þvílíkt svekk að þurfa að vinna yfir höfuð. Það er alltaf best í september þegar rakinn er dottinn niður og hitinn heldur sig á milli 25-30 gráðanna. Það munar samt mest um rakann. Það sést svo vel á útsýninu út um gluggann á labbinu hjá mér, en í sumar sáust Emipire State og félagar bara í móðu eins og fjallabelti í fjarska, en þessa dagana sé ég næstum því Frelsisstyttuna... (tjah, kannski ekki alveg, en næstumþví....).

Posted by erna at 09:58 FH