Já, við fórum á snilldartónleika með Rósu í gær. Þau klikkuðu ekki frekar en fyrri daginn. Mér líst sérstaklega vel á lögin af nýja diskinum þeirra, Takk. Sá diskur kom ekki út hér í BNA fyrr en í dag, þannig að ég bíð óþreyjufull eftir að fá hann í hendurnar. Í huganum skoraði ég á hljómsveitina að koma mér á óvart með nýju tónlistinni, og ég held svei mér þá að þau hafi gert það.
Sjóið er líka allraf flott hjá þeim. Josh og Melissa voru alveg dolfallin, höfðu bara aldrei séð neitt þessu líkt.
Aníma hitaði upp, mig langar líka í diskinn þeirra, en við fórum út bakatil, þannig ða ég náði ekki að kaupa hann...
Æ, mig auma. Lífið er allt komið í klessu af því að bakið á mér er í hönk. Það er svo margt sem maður tekur sem sjálfsögðum hlut í þessum heimi. En Jeffrey (Tribiani) ætlar að kýla olnboganum á sér í afturendan á mér á fimmtudagsmorguninn. Kannski hjálpar það.