Fimmtudagur, 8 september, 2005
Hátíðarbrigði

Hún Tracy mín hélt doktorsfyrirlesturinn sinn áðan og er núna að verja. Á meðan bíðum við hin eirðarlaus, þangað til hún birtist á ný, heiðruð doktorsnafnbótinni.

Það er svo gaman á doktorsvarnardögum hér, allir klæða sig hátíðlega, fjölskylda og vinir doktorsefnisins mæta upppússuð og fín, en vita ekkert hvað þau eiga af sér að gera.

Klukkan fjögur verður svo veisla og svo verður skrall niðri í bæ frameftir kvöldi. Stuð!

Posted by erna at 01:50 EH
Frestunarárátta í hámarki...

Í augnablikinu er ég að fresta því að fara að sofa og er búin að hanga inni á hinum og þessum bloggum og kommenta misgáfulega og stend mig svo að því að tékka reglulega hvort bloggeigendur séu búnir að svara. En það er mið nótt á Íslandi og þetta voru flest íslensk blogg. Steik. Ég held ég sé komin með deliríum af þreytu.

Ég komst að því í dag að það er tvennt sem læknar allt.

Það fyrra er að vera að labba heim, frekar þreytt og niðurdregin, eftir að hafa flýtt mér í heilan dag til að komast til læknis klukkan hálfsjö en samt komið of seint, misst af læknatímanum, heilsugæslunni hafi verið lokað á nefið á mér (hey, hvað varð um hippókrates?) og heyra Mörð kalla til mín. Það er ótrúlegt hvað það rofar til í sálinni við að heyra sinn heittelskaða kalla til sín.

Það síðara er súkkulaði.

Ég kysi nú heldur það fyrra ef ég þyrfti að velja.


Posted by erna at 12:43 FH
Tomato gravy for biryani

Tomato gravy for biryani
Originally uploaded by ernam.

Ég stóðst bara ekki mátið og tók mynd af matnum sem ég var að elda í kvöld. Doktorsvörnin hennar Tracy er á morgun og ég eldaði biryani (indverskan hrínsgrjónarétt) fyrir veisluna. Með biryani-inu gerði ég svo til gerða tómat-hnetusósu sem leit svona svakalega vel út áður en ég kveikti undir pönnunni.
Posted by erna at 12:05 FH