Við erum búin að hafa það alveg svakalega næs um helgina. Þvílíkt afslappelsi í gangi bara. Ég vann á laugardagsmorguninn og svo fórum við í bæinn, keyptum þarflegt til heimilisins og fengum okkur sushi.
Í gær fór ég svo á grænmetismarkaðinn hér í götunni. Það er svo ótrúlega gaman að fara á þennan markað, sérstaklega síðsumars og á haustin. Grænmetið er svo fallegt og það virkar meira svona eins og alvöru grænmeti, af því að það er ekki staðlað í laginu eins og stórmarkaðsgrænmeti virðist oft vera. Ég keypti djúsí paprikur, maísstöngla, gula og græna tómata og svo svona erfðagripstómata (heirloom tomatoes). Og það var ekki vondur maturinn sem úr þessu eldaðist.
Ég fór líka í tásnyrtingu. Oh.. það er svo æðislegt! Mér líður alltaf eins og prinsessu þegar ég labba út af snyrtistofunni með velsnyrtar og lakkaðar tásur.
Í dag er ég svo búin að kúra uppi í sófa og lesa og er á leiðinni að hjóla í vinnuna. Svo ætla ég að sjálfboðaliðast með vinum mínum í bátahúsinu, fara aftur í vinnuna og svo að hitta stelpurnar í kvöld yfir gvuðdómlegri gazpacho súpu og smá flissi í eftirrétt.