Miðvikudagur, 31 ágúst, 2005
Úúúúúúfffff

Það er svo heiiiiitttttt að það eru allir að kafna hérna. Loftkælingarnar hafa engan veginn undan, sérstaklega ekki inn í frumurækt þar sem eru þrjú frumuræktarhúdd á fullu blasti. Þar inni eru nákvæmlega 30°C. Úti eru líka 30°C, en 71% raki. Gersamlega óbærilegt. Aaaarg.

Ég held ég sé bara farin að hlakka til vetrarins, þó það þýði að ég geti ekki farið á kayak.

Posted by erna at 04:13 EH
Verslunarmannahelgi?

Mér finnst alltaf smá verslunarmannahelgarfílingur í gangi hér vikuna fyrir Labor Day helgina. Sennilega er það vegna þess að þessar helgar eiga margt sameiginlegt. Báðar eru þriggja daga helgar sirka mánuði áður en það fer að hausta, síðasta stóra ferðahelgi sumarsins.

Hér er fólk frekar afslappað, ekkert stress í gangi, fólk að klára sitt í rólegheitum og ekki að byrja á neinu fyrir helgina.

Við búumst reyndar ekki við því að ferðast neitt um helgina en vonandi náum við smá afslappelsi ásamt hinum venjulega helgarpakka. Kayak, þrífa, versla, elda, læra og vinna smá...

Posted by erna at 12:12 EH