Þá er það opinbert, ég er búin að taka trú! Og til þess að boða út fagnaðarerindið langar mig til þess að benda á þessi nýstárlegu trúarbrögð. Flying spaghetti monsterism. Hér er hlekkur á Kirkju hins fljúgandi spagettískrímslis.
Ansi góð paródía á sköpunarsinna og fylgisfólk vitsmunalegrar hönnunar (intelligent design).
Það sem sjokkerar mig mest er að það séu til sameindalíffræðingar sem hafna þróunarkenningunni. Það líður ekki sá dagur í minni vinnu að ég sé ekki að notfæra mér þá kenningu í starfi. Það að vera sameindalíffræðingur og hafna þróunarkenningunni er eins og að vera eðlisfræðingur sem hafnar þyngdarlögmálinu.
Ramen.
Æji, nenniði ekki að segja mér eitthvað skemmtó? I'm having a grumpy day... Ég var svo uppþornuð þegar ég vaknaði að mér leið eins og ég væri þunn. Ætli það hafi ekki bara verið málið, ég er þunn eftir sambland af spinning tíma gærdagsis og að hafa gleymt að kveikja á loftkælingunni fyrir svefninn.... Afleiðingar; allt í dag er í slóóó móóóóó....... Ég er ekki alveg að meika það.