Eggaldin-núðlugratin er bara alveg schjúklega gott! Ég má bara til með að deila því með ykkur þar sem ég sit hér. Það er svo gott að ég er búin að elda það þrisvar á tveimur vikum. Næst ætla ég að prófa að setja í það tófú.
Í öðrum fréttum þá verð ég bara að monnta mig af því hvað ég er árrisul orðin. Í dag er fjórtándi dagurinn í röð þar sem ég fer á fætur klukkan sjö. Að undanskildum síðasta laugardegi, en þá fór ég á fætur klukkan átta og á sunnudaginn fyrir viku fór ég á fætur klukkan sex. Trikkið er að fara á fætur á sama tíma, sama hvaða dagur er og hvenær maður fór að sofa. Ég held ég sé líka bara farin að sofa mun betur fyrir vikið. Svei mér þá!
Annars þá var helgin bara fín. Við fórum í pikknikk í Central Park á laugardaginn. Það var mjög afslappandi og næs. Við fórum í Health Foods niður á Columbus Circle og keyptum okkur hrúgu af gúmmelaði í umhverfisvæna hlaðborðinu þeirra og trítluðum svo sem leið lá norður á Sauðaengið og tylltum okkur þar og nutum samverunnar og matarins. Ohhh.. næs!
Í gær var svo vinnuvikan byrjuð aftur hjá mér, en Mörður var heima og sá um heimilisverkin.