Þriðjudagur, 16 ágúst, 2005
Þarsvo leiiiiðilegt...

að bíða eftir því að Möddi komi heim... Ég vildi að hann kæmi núna.

Posted by erna at 07:40 EH
Allt í áttina...

Ég held að ég sé að skríða saman eftir djamm helgarinnar. Ég bara spyr, af hverju er saphire martini svona góður drykkur? Og af hverju eru martiniþrungnar ólífur svona ótrúlega freistandi?

Við fórum niður í East Village, á Orchard Street, þar sem átti að vera tælenskur veitingastaður, en við fundum hann ekki, þannig að við enduðum á amerískum stað sem var svona semi-diner, semi ítalskur í húsnæði sem virtist hafa verið fiskbúð eða sláturhús áður fyrr. Svo fórum við á bar sem kallast People, og þar var allt fullt af sameindalíffræðingum sem hafði verið stefnt þangað. Tilefnið var að Helen vinkona er búin að búa hér í 2 ár. Ég kynntist fullt af nýju fólki og það var bara almennt stuð í gangi.

Í kvöld kemur svo Mörður heim. Langþráð kvöld sumsé!

Posted by erna at 04:41 EH