Mikið assgoti finnst mér hann Guðmundur Steingrímsson vera orðheppinn maður. Bakþankar hans í Fréttablaðinu eru hrein schnilld! Mæli meðessu =)
(Ok, back to work...)
Undanfarin vika hefur greinilega tekið eitthvað á, því ég svaf af mér allar vekjaraklukkur og rumskaði ekki fyrr en klukkan tíu! Ég missti því af kayakferðinni í morgun. Ég var pínu svekkt fyrst, en núna er ég bara nokkuð sátt, sit bara hér heima og vinn í tölvunni. Það verður gott að koma nokkrum verkefnum úr vegi sem hafa hangið yfir höfði mér í smá tíma.
Það er varla hundi út sigandi í dag það er svo heitt og rakt. Ég held að þetta sé með heitari dögum sem ég hef upplifað hér í borginni, loftkælingin okkar hefur engan vegin undan þannig að ég sit hér bara á nærklæðunum einum saman og vinn og drekk ískaffi.