Kayakferðin í gær var frábært. Þvílíkt púl! Straumurinn í ánni var 2.5 hnútar, þannig að við rérum í klukkutíma á móti straumi og vorum í korter á leiðinni til baka. Í þetta skipti voru byrjendur skildir eftir heima hjá leiðbeinanda sem kenndi þeim að komast aftur upp í bátana eftir að hafa oltið og svona, þannig að við fórum bara þrjár saman út úr höfninni og upp ána. Það var sjóðandi heitt og rakt í gær, þanngi að það var mjög kærkomið að kæla sig aðeins niður. Svo héngum við bara í höfninni og kjöftuðum og horfðum á sólsetrið og slöppuðum af.
Nú sit ég bara og plana tilraunir komandi viku og hlusta á Nick Cave. Ég held að ég hafi ekki hlustað á The Boatmans Call í heilt ár eða meira, fékk nóg af honum á tímabili, finnst hann pínu væminn á köflum. Núna finnst mér hins vegar voða notalegt að hlusta á hann. Minnir mig á Kaupmannahöfn '97, þegar ég keypti þennan disk fyrst. Það var gott sumar, ójá!
Helgin framundan lofar góðu. Hrúga af tilraunum, tvö partý, róðranámskeið, kayakferð og ég bara veit ekki hvað!
Ég er hins vegar orðin frekar leið á að vera grasekkja. Ég vil fá manninn minn aftur heim. Sem betur fer kemur hann aftur á þriðjudagskvöldið, þannig að ég þarf svosem ekki að örvænta...