Miðvikudagur, 10 ágúst, 2005
Þórsdunur

Nú er málið að krossleggja fingurna og vona að veðurspáin fyrir morgundaginn haldi. Það vill svo skemmtilega til að það er spáð þrumuveðri upp á hvern einasta dag í heila viku hér á slóðum. Nema á morgun. Það lítur því út fyrir að ég komist á kayak eftir vinnu. Kannski. Það virðist ekki mikið vera að marka veðurspána hér þegar þrumuveður er annars vegar, þannig að það gæti slegið niður nokkrum eldingum á morgun, hver veit... En ég vona ekki....

ps. Bláberjaskyr.is er ótrúlega gott.

Posted by erna at 03:30 EH