Föstudagur, 5 ágúst, 2005
Ég fer í fríið....

Mörður fór í vinnuna í morgun og tók með sér stóra ferðatösku. Ástæðan? Jú, hann fer beint út á flugvöll eftir vinnu og tekur næstu flugvél til Keflavíkur.

Ég er enn hér á Manhattan, en eftir nokkrar klukkustundir leggjum við stúlkukindurnar af stað í útileguna.

Á meðan ég er í burtu megið þið endilega kíkja á myndirnar frá því við gengum Laugaveginn. Ég tók líka myndir af jeppum að fara yfir ár inni í Þórsmörk, bara svona af gamni fyrir vini mína sem voru að spá í að fara þetta á fólksbíl.

Posted by erna at 12:25 EH