Ég er að bíða eftir því að laxa-sáðfrumu-DNAið mitt sjóði. Á meðan gæti ég náttúrulega lesið einhver svakaleg vísindi, en það tekur því varla fyrir fimm mínútur. Og þá er einmitt gott að blogga smá.
Ég hélt labbfund í morgun og ætla því að verðlauna mig með því að fara í konukajakferð eftir vinnu, eða í chick-paddling eins og við köllum það hér. Þetta verður þriðja kajakferðin mín á rétt rúmri viku, þannig að ég ætti nú að fara að komast í kajakform.
Um helgina ætlum við stelpurnar líka að fara í hina árlegu chick-camping trip, þar sem við munum elda góðan mat, fara í dagsgöngu, flissa, og flissa meira. Þetta mun nær allt eiga sér stað í Catskill fjallgarðinum hér fyrir norðan. Það verður gott að komast út úr borginni í aðeins kaldara og minna rakt loftslag. Undanfarnir tveir dagar eru búnir að vera frekar sveittir og rakir eitthvað. Algerir slummudagar.
Svo fer Mörður aftur til Íslands á morgun og kemur ekki heim fyrr en eftir tæpar tvær vikur. Það verður skrítið að vera án hans, en bara enn betra að fá hann aftur til baka. Ég er strax farin að hlakka til. (Þegar hann kemur til baka sko...)