Mánudagur, 1 ágúst, 2005
Hvernig er þetta hægt....

Stundum geta vísindin verið stórskrýtin. Þessi vísindagrein vekur eiginlega upp of margar spurningar.....

Posted by erna at 01:43 EH
Latino

Ég fíla það í strimla hvað maður fær oft á tilfinningunni í þessarri borg að maður sé í einhverju Þriðja-heims landinu. Í gærkvöld fór ég í Fairway að versla og tók leigubíl heim með matvörurnar. Þetta var ólöglegur leigubíll, keyrður af manni frá Mið- eða Suður-Ameríku, einn af þeim sem eru alltaf að harka þarna við þennan stórmarkað. Ég þurfti að prútta um verðið, endaði í fimm dollurum, sem er ekki svo slæmt. Á leiðinni heim spilaði hann Suðurameríska popptónlist og lyktin í bílnum hans var pínu krydduð og magnaðist einhvern veginn upp í hitanum og rakanum. Ég hafði það algerlega á tilfinningunni að ég væri komin eitthvert annað í heiminum.

Posted by erna at 07:41 FH