Föstudagur, 29 júlí, 2005
Kayaktúr

Ég skellti mér á kayak á Hudson ánni eftir vinnu í gær. Mætti meira að segja extra snemma til þess að komast með í "konuferð" eða "womens paddle". Það er víst eitthvað svona átak í gangi að fá fleiri konur með í sportið og því eru hafðar svona ferðir bara fyrir konur.

Það var svolítil alda, og svo var ég á bát með skökku stýri, þannig að þetta tók á. Ég réri bara vinstra meginn alla leiðina norður eftir, en straumurinn var orðinn minni á leiðinni til baka þannig að þetta var öllu afslappaðra á heimleiðinni.

Veðrið var yndislegt og ekki mikil traffík á ánni. Við rérum fram hjá slökkviliðsbátnum og spjölluðum við slökkviliðsmenn sem voru á leið til að vakta flugeldasýningu við Frelsisstyttuna. Þeir voru bara í stuði, en það er samt ekki uppáhalds djobbið þeirra að vakta einhverjar rakettur. Svo spjölluðum við líka við einhverja gaura á seglbáti og líka stráka sem réru stórum árabát eftir ánni. Þeir smíðuðu víst bátinn sjálfir.

Við rérum upp að Chelsea Piers, kannski ekki langt, en það voru nokkrir byrjendur í hópnum (sem útskýrir öll stoppin að kjafta við hina og þessa gaura, við þurftum að bíða svolítið oft eftir miðaldra konu sem slóst í hópinn). Svo rérum við til baka baðaðar appelsíunugulri birtu sólarlagsins. Ótrúlega næs bara.

Svo skelltum við okkur nokkrar stelpurnar út á næstu bryggju við og horfðum á strandblak og borðuðum grænmetisborgara við undirspil Bítlanna.

Frábært kvöld alveg hreint.

ps. Mæli með þessari ferðasögu. Þetta kom reyndar í fréttunum heima, en það er alltaf gaman að rifja þetta upp. Liðið hér í New York heldur því fram að rostungamyndirnar séu falsaðar. Miðað við lýsingar á aðstæðum hjá drekanum held ég bara alveg að myndirnar geti verið ekta.

Posted by erna at 11:21 FH
Miðvikudagur, 27 júlí, 2005
Svækja kennd við hita

Hér er spáð fjörutíu stiga hita í dag. Hundrað og fimm gráður á Farenheitkvarða, hvorki meira né minna. Þrjúhundruð og þrettán gráður á kvarðanum sem kenndur var við Lord Kelvin.

Mörður bað mig vinsamlegast um að slökkva ekki á loftkælingunni þegar ég færi. Hún er svo mikill aumingi greyið, að það tekur hana nokkra klukkutíma að kæla niður stofuna okkar í svona hita, best að hafa hana bara í gangi takk.

Þotuþreytan er að rjátlast af mér. Fór ekki að sofa fyrr en hálfellefu og vaknaði ekki fyrr en hálfsex. Þetta er ágætt, búin að vera voða húsleg svona í morgunsárið, þrífa og bóna, rífaföllum skóna.

Jæja, verð víst að drífa mig í sjúkraþjálfun.

Posted by erna at 08:20 FH
Þriðjudagur, 26 júlí, 2005
Relaxing at Álftavatn

Relaxing at �lftavatn
Originally uploaded by ernam.

Það eru engar ýkjur að stemningin á Álftavatni fyrir viku síðan hafi verið frekar afslöppuð. Hvað er betra en smá sólbað uppi á hálendi eftir staðgóða núðlusúpu í morgunmat?

Fleiri myndir á leiðinni næstu daga....

Posted by erna at 09:51 FH
New York, New York...

Æhj, það er nú bara notalegt að vera komin heim aftur. Það var samt spes tilfinning að koma hingað í gær eftir nær þriggja vikna fjarveru. Það sem manni fannst hversdagslegt fyrir þremur vikum síðan var allt í einu orðið hálfframandi.

Það fyrsta sem ég tók eftir var auðvitað rakinn, þetta er eins og að búa í fiskabúri. Þegar ég svo stóð á tröppunum hér heima og andaði að mér kvöldloftinu fann ég sæta hitalyktina, sem ég hef bara ekki tekið eftir hér fyrr. Svona "útlandalykt" eins og þegar maður fór til sólarlanda hér í denn. Þessi lykt er örugglega alltaf hér á sumrin, en ég tók fyrst eftir henni í gær þegar nefið á mér var "sensitíserað" eftir nokkrar vikur á svotil lyktlausu Íslandi. (Að frátalinni lambagraslyktinni og peningalyktinni náttúrulega....).

Ekki minnkaði heldur framandleikatilfinningin þegar ég vaknaði klukkan fjögur í nótt í kolniðamyrkri.

Ég fór svo á fætur upp úr fimm og fór út í búð og keypti mjólk. Það er svo falleg birta hér á morgnana rétt eftir sólarupprás og mér finnst alltaf notalegt að vera á ferli snemma, þegar borgin er rétt að vakna. Þá er heldur ekki orðið of heitt, en í dag er spáð 37°C og sjötíu prósent loftraka. Úff.

Nú sötra ég bara kaffi og raða myndum inn í gagnagrunninn okkar áður en ég skelli þeim á netið.

Ætli maður fari svo ekki bara að skrölta í vinnuna.

Posted by erna at 07:37 FH
Miðvikudagur, 13 júlí, 2005
Rigingin í Reykjavík

Matti talar um veðurfóbíu á blogginu í dag. Ég er nú alveg sammála því að það sé nú ansi kyndugt hvað fólk, alið upp á Íslandi, sé viðkvæmt fyrir rigningu.

Ég viðurkenni það líka almennt vanmat á aðstæðum í síðustu viku þegar ég pakkaði ofan í tösku fyrir heimferð. Sandalar og pils voru ekki alveg málið. Ég hef ekki verið hér í júlí í fjögur ár, "hva, þetta getur ekki verið svo slæmt" var viðkvæðið, þegar sumarfötin fengu far í töskunni minni til Íslands.

Veðrið hérna er reyndar alveg hreint ljómandi, eða varð það, eftir að ég keypti mér lopapeysu og sokka. Svo er bara fínt að hafa þungbúinn himinn, þá sefur maður betur og ekki skemmir fyrir þögnin í Reykjavík að nóttu til.

Annars erum við nú ekki búin að hafa það slæmt. Mörður fór norður að veiða í nokkra daga og ég er búin að vera hér fyrir sunnan að heilsa upp á vini og vandamenn.

Keypti mér líka vikukort í World Class, fór í spinning og svona. Ógisslega fínt bara. Svo er spáin góð, við ætlum að rölta Laugarveginn í næstu viku og það á akkúrat að glaðna við á Suðurlandi á mánudag. Vonum bara að það haldist!

Posted by erna at 11:02 FH
Miðvikudagur, 6 júlí, 2005
Bleikar tær

Bleikir Fætur
Originally uploaded by ernam.

Sem betur fer eru ekki komin Tevuför á fæturna á mér enn, en það hefur yfirleitt endað á því á hverju ári.

Skellti mér í tásnyrtingu áðan, og fékk mér handsnyrtingu í bónus. Mikið er það nú alls ekki slæmt að láta nudda á sér skankana. Sérstaklega á þessum síðustu og stressuðustu tímum fyrir heimferð.

Skál fyrir því!.


Posted by erna at 08:48 EH
Mánudagur, 4 júlí, 2005
Den fjerde Juli.

Ég er að fara niðrí bæ að pæjast, kannski fara í tásnyrtingu (loksins) og kannski kaupa mér skó, allt eftir því hvernig vindarnir á suðurhluta Manhattan blása. Svo erum við að fara í fjórða júlí selebrasjón uppi í New Canaan. Ekki slæmt!

Posted by erna at 09:32 FH
Sunnudagur, 3 júlí, 2005
Gaman í baði!

Gaman í­ baði!
Originally uploaded by ernam.

Mörður þurfti að gera við gat á vöðlunum sínum um helgina. Hann er að fara í veiði með pabba sínum og fleiri vinum um næstu helgi og betra víst að mæta á svæðið í vatnsþéttum vöðlum.

Vöðlurnar eru búnar að ligga, þræddar upp á sófaborðið hjá okkur í nokkra daga, með enska orðabók Merriam-Webster sem farg ofaná líminu..

Í dag var svo kominn tími til þess að prófa hvort viðgerðin hafi heppnast.
Posted by erna at 09:06 EH
Pínu íllt í rassinum

Þrusuhelgin er búin að standa undir nafni og á eftir að gera það. Ég og Möddi fórum út með labbfélögunum á föstudaginn og fengum okkur brjór og Buffalovængi og slúðruðum með þeim vel framyfir miðnætti. Það er alveg nauðsynlegt að skella sér út á skverinn svona með vinnufélögunum annað slagið.

Ég var því heldur framlág þegar ég vaknaði klukkan sjö í gærmorgun eftir fjögurra tíma svefn, og rauk út til að hitta Adelene, en við hjálpuðum til við að stjórna kajakferð frá Bátahúsinu í gærmorgun. Við rérum upp eftir ánni í þrjá tíma, en það var að falla út og svo var sterkur mótvindur og okkur bar frekar hægt yfir þrátt fyrir kraftmikil áratök. Við ætluðum upp að Intrepid herskipinu, en ákváðum að fara ekki alveg alla leið því það voru nokkrir óreyndir ræðarar orðnir heldur þreyttir. Við vorum þá líka búin að róa næstumþví í stað í hálftíma. Það tók svo innan við klukkutíma að koma sér til baka, með vindinn í bakið og sjávarföllin og árstrauma með okkur.

Við Mörður skelltum okkur svo út í Williamsburg, fundum ekki hamborgarastaðinn sem við höfðum ætlað á, þannig að við fengum okkur indverskan og drifum okkur svo heim, því ég var að geispa golunni af þreytu. Ég gerði ekki mikið annað en sofa eftir að við komum heim í gær, en vaknaði hress og spræk klukkan sjö í morgun og er búin að þvo þvott og smyrja flatbrauð með smurosti og reyktum laxi fyrir gönguferð dagsins, en við stelpurnar ætlum að skella okkur á Breakneck Ridge. Ég verð að viðurkenna að ég er með harðsperrur í þjónum eftir róður gærdagsins, en ekkert svakalegar þó.

Posted by erna at 09:31 FH
Föstudagur, 1 júlí, 2005
Hey, dude that's my country!

Hey, dude that's my country!
Originally uploaded by ernam.

Ég var að skella nokkrum gömlum myndum inn á FlickR. Mér finnst þessi mynd af honum Mödda svo sæt.

Hann var í allan vetur í þessarri bláu flíspeysu sem yfirhöfn. Hann skar sig vel úr mannfjöldanum hér í borginni, ljóshærður og bláeygður, í peysu í stíl við augun. Ég þekkti hann úr margra mílna fjarlægð, í hafi af dökkhærðum gaurum í svörtum vetrarfrökkum.

I guess I have a thing for blonde guys.

Posted by erna at 01:10 FH