Matti talar um veðurfóbíu á blogginu í dag. Ég er nú alveg sammála því að það sé nú ansi kyndugt hvað fólk, alið upp á Íslandi, sé viðkvæmt fyrir rigningu.
Ég viðurkenni það líka almennt vanmat á aðstæðum í síðustu viku þegar ég pakkaði ofan í tösku fyrir heimferð. Sandalar og pils voru ekki alveg málið. Ég hef ekki verið hér í júlí í fjögur ár, "hva, þetta getur ekki verið svo slæmt" var viðkvæðið, þegar sumarfötin fengu far í töskunni minni til Íslands.
Veðrið hérna er reyndar alveg hreint ljómandi, eða varð það, eftir að ég keypti mér lopapeysu og sokka. Svo er bara fínt að hafa þungbúinn himinn, þá sefur maður betur og ekki skemmir fyrir þögnin í Reykjavík að nóttu til.
Annars erum við nú ekki búin að hafa það slæmt. Mörður fór norður að veiða í nokkra daga og ég er búin að vera hér fyrir sunnan að heilsa upp á vini og vandamenn.
Keypti mér líka vikukort í World Class, fór í spinning og svona. Ógisslega fínt bara. Svo er spáin góð, við ætlum að rölta Laugarveginn í næstu viku og það á akkúrat að glaðna við á Suðurlandi á mánudag. Vonum bara að það haldist!