Fimmtudagur, 30 júní, 2005
Indepencence Day Weekend

Það er allt að gerast hjá okkur þessa dagana, hver dagur framundan þaulskipulagður af skemmtunum.

Við stelpurnar ætlum að hittast í kvöld og panta okkur mat og flissa smá saman, og hafa gaman. Fyrir ári síðan hittumst við yfir teikát í hverri viku, en allt í einu eru allir komnir á fjórða ár í náminu og svakalega bissí, þannig að við hittumst sjaldnar.

Á morgun ætlum við svo að fara nokkur af labbinu ásamt mökum að fá okkur börger og bjór (og kannski fröllur með, hver veit) og skandalísera. Alltaf gaman að bregða undir sig betri fætinum með vinnufélögunum.

Á laugardagsmorgun ætla ég svo að vera sjálfboðaliði í kayakferð með DTBH, þriggja tíma ferð upp eftir Hudson, að Intrepid herskipinu/safninu og til baka niðrí bæ. Það verður næs að komast aftur í kayakferð en ég hef bara buslað í kringum bryggjuna á 72. stræti í sumar.

Á Sunnudaginn ætlum við stelpurnar ásam vini hennar Emily, kannski Merði og fleirum, að skella okkur í gönguferð á Breakneck Ridge. Þess má geta að fyrsta færsla þessa bloggs var einmitt um tilvonandi Breakneck Ridge göngu fyrir tæpum fjórum árum síðan. Sundbolurinn verður tekinn með, því við stefnum á að synda í Uppákomuvatni, eða Lake Surprise eins og Kaninn kallar það.

Á sjálfan Sjálfstæðisdaginn, fjórða júlí verður stefnan tekin í partý uppi í Conneticut hjá Ásthildi og hennar fólki. Það klikkaði sko ekki stemningin síðast þegar við fórum, þannig að ég hlakka gasalega til.

Á þriðjudaginn ætlar labbið mitt svo að fara saman í bíó að sjá myndina Yes. Myndin fjallar víst um sameindalíffræðing, en Joan Allen kom á labbið okkar fyrir tveimur árum síðan til þess að fá ráðleggingar og innsýn inn í líf og störf sameindalíffræðinga. Það var reyndar frekar fyndið, þar sem plottið í myndinni var á þeim tíma svolítið spes. Joan átti að leika líffræðing í sálarstríði vegna þess að henni þætti svo vænt um frumurnar sínar. Sumar þeirra væru að deyja og henni fyndist svo erfitt að gera tilraunir á þeim. Þau virðast hafa tekið ráðleggingum okkar, þar sem plottið er annað í myndinni núna, en henni var einfaldlega sagt að við myndum ekki tilfinningatengsl við frumurnar okkar. Pjúff, getið þið ímyndað ykkur að eiga í tilfinningasambandi við sjötíumilljón eitilfumur?

Á miðvikudaginn er svo bara ekkert planað annað en litscan (hluti af vinnunni) og að pakka í töskur.

Á fimmtudaginn fljúgum við svo heim í heiðarbólið og lendum að morgni föstudags.

Ó ég hlakka svo til!

Posted by erna at 02:49 EH