Mánudagur, 27 júní, 2005
Blá á milli brjóstanna

Ég mæli ekki með því að vikta Brómófenól-blue hanskalaus og fáklædd. Með fáklædd á ég við á hlírabol og í sandölum. Mér varð það á í messunni í gær og nú er ég blá á höndunum, í munnvikunum (af því að mig klæjaði í munnvikið áður en ég fattaði að ég væri blá á höndunum), á tánum og handleggjunum og á milli brjóstanna. Flýta sér minna næst semsagt.

Posted by erna at 05:08 EH
Hvurslags leti...

Hmmeeehhh... mín er svo löt. Ég nenni ekki í vinnuna, engan veginn takk fyrir. Samt er spennó hlutur í gangi á labbanum. Ég þarf bara að hella smá coomassie lausn á gelið mitt, skella því í örraran og þá fæ ég svona instant-örbylgjuofnaniðurstöðu. Eða svona næstum því instant. Ég vann eins og skepna alla helgina að þessari tilraun. Því er bara eins gott að það komi eitthvað almennilegt út úr þessu. Annars er ég bara hætt að vinna um helgar takk. (Ég vildi að það væri hægt bara svona si-svona, en maður nennir ekki að vera í þessu námi til aldamóta er það?)

Posted by erna at 10:16 FH