Biochemist walks into a bar in England and says
"Pint of Adenine triphosphate please barman"
Barmans says " here you go Sir, that will be 80p
----
Shamelessly stolen from NWFSC.
Fyrir þá sem ofbauð smekkleysan sem í færslunni hér á undan fólst, vil ég taka það fram að ég var eiginlega bara að gera grín að sjálfri mér og því sem maður lætur bjóða sér sem aumur doktorsnemi, neðstur í goggunarröð vísindaheimsins. Ég stóð nefnilega sjálfa mig að því að lesa þennan blessaða Pólverjasamning og finnast hann bara nokkuð boðlegur, áður en ég kleip sjálfa mig í handlegginn og gargaði. Ríalití tjekk plís =)
Og mikið djöf**** er nýi SOAD diskurinn góður! Það voru ekkert nema rjúkandi rústir eftir af þrekstiganum sem ég var á í ræktinni áðan, svo mikil voru lætin þegar ég hlustaði á diskinn í fyrsta skiptið.
Og mikið er nýi Tears diskurinn annars sorglega slappur. Ég var að vona að ég fengi eitthvað meira í líkingu við Dog Man Star eða London Suede. Hann verður seldur, aumingja kaupandinn. Vonbrigði vikunnar sumsé, en ég bjóst svossem við því hálft í hvoru.
Hmmm... ég var að skoða Pólverjavinnusamninginn, sem ku vera "fádæma fautaskapur" og mér sýnist hann vera bara mjög svipaður mínum samningi:
Pólverjarnir fá 120 þúsund í mánaðarlaun, fyrir 250 vinnustundir. Ég fæ um það bil 2200 dollara í mánaðarlaun (140 þúsund) fyrir lágmark 250 vinnustundir, en enga borgaða yfirvinnu.
Pólverjarnir fá 12 daga í frí á fjögurra mánað fresti. Ég fæ 10 daga í frí á ári, reyndar á launum.
Pólverjarnir fá frítt húsnæði, ég borga 1200 dollara á mánuði.
Pólverjarnir fá frítt flug heim. Ég fékk frítt flug hingað þegar ég byrjaði í náminu, en bara aðra leið.
Kólumbíuháskóli reynir virkilega að gefa mér far í vinnuna á morgnana, en rútan er svo óáreiðanleg að ég kem mér bara í vinnuna sjálf. Ætli pólsku gaurarnir fái alltaf far?
En munurinn er náttúrulega sá að ég á séns á að fá stafina P og h og D fyrir aftan nafnið mitt þegar ég er búin að standa í þessu í svona sirka 6 ár. Annað væri náttúrulega fautaskapur.
Já, já, ég veit að það er prumpulykt af beta-merchapto-etanóli, ég finn hana líka. (Minnir mig bara á heitu hveri heimalandsins). Það bara vill svo til að ég neyðist til að nota þennan ilm í prótínsýnin mín takk fyrir, og ætti það ekki að koma neinum á óvart.
Mér finnst bara að ef maður vinnur á rannsóknarstofu eigi maður að stilla sig áður en maður kvartar yfir lyktinni af DMSO (fúl egg), BME (ofangreind prumpu/hveralykt) og Tetrametyletylendiamín (kæstur hákarl).
Men det er bare mig.