Það er annars búið að vera svo klístrað loftið hérna í borginni undanfarna viku að maður man ekki eftir öðru slíku svona í byrjun júní. Hitinn hefur farið upp undir þrjátíu og fimm gráðurnar og rakinn verið slíkur að ég held að okkur séu farin að vaxa tálkn.
Sem betur fer stefnum við út úr bænum á föstudaginn, í sautjánda júní partí hjá Lalla og Kristínu, því að það veitir ekki af því að kæla sig aðeins niður eftir þessi ósköp!