Ég pantaði mér nýja diskinn með The Tears, Here come the tears í síðustu viku. Ég bíð mjög spennt, því þessa hljómsveit skipa engir aðrir en Berdard Butler og Brett Anderson, höfuðpaurar Suede sálugu.
Ég væri ekker svo spennt ef þetta væru bara Suede að koma aftur, því ég fílaði ekkert af því sem þeir gerðu eftir að Butler yfirgaf hljómsveitina. Það vantaði alltaf töfrana sem þeir náðu að framkalla á Suede og Dog Man Star.
En, ó boj, Butler og Anderson saman aftur, það er hreinlega uppskrift að einhverju góðu.