ARG. Ég keyrði prótíngel af stað klukkan rúmlega tvö, og núna tveimur tímum síðar eru sýnin rétt að skríða út úr þéttihlaupinu og inn í aðgreiningarhlaupið. Lítur ekki vel út fyrir líkamsræktarplön kvöldsins.
(Það skal tekið fram að ég þurfti að fletta upp orðunum þétti- og aðgreiningarhlaup í ritinu: "Verklegar æfingar í lífefnafræði fyrir námskeiðið LÍFEFNAFRÆÐI 3" eftir Bjarna Ásgeirsson. Ég er að breytast í útlending, því í dag kalla ég þetta bara stacking og resolution gel, með Long Island hreim).
Öppdeit klukkan tíu mínútur í ellefu: Ég var sniðug sko. Klukkan átta var enn slatti eftir af gelinu þannig að ég dreif mig bara í ræktina. Og nú er ég búin að sprikla og mætt á labbið aftur og gelið er enn ekki komið alla leið, þannig að ég er hérna bara að borða sússí í kvöldmatinn og enn að bíða. Þetta er samt alveg að koma. Þá þarf bara að skola gelið í klukkutíma og setja það svo inn í 37°C herbergi í sólarhring. (Sem gæti reyndar farið illa með djammplönum morgundagsins.....)