Miðvikudagur, 8 júní, 2005
Nudd og nuð

Erna: Hæ elskan,
Mörður: Hæ.
Erna: Heyrðu, ég stefni á að koma heim klukkan átta.
Mörður: OK, sé þig þá.
Erna: Og ég er ógisslega þreytt þannig að ég þarf að fá algera sérmeðferð. Herðanudd og allt það.
Mörður: Ferðanudd?????

.........þar fór það....

Posted by erna at 06:46 EH
Frekar ógeðslegt

Þegar ég borða nektarínur finnst mér alltaf pínu ógeðslegt þegar kjarninn er klofinn í henni og það sést inn í hann. Ég sé alltaf fyrir mér einhvern ógeðslegan kakkalakka skríða út úr kjarnanum. Ojjjjjj...... Þvökk.....

Posted by erna at 05:44 EH
Early bird?

Jæja, ég er komin á fætur, og er að borða hafragrautinn minn. Ég fór aftur á fætur klukkan hálfsjö. Snúsaði ekki, þar sem ég stillti ekki vekjaraklukku, en lá uppi í rúmi í hálftíma eftir að Mörður ýtti við mér þegar hann fór klukkan sjö.

Ég er samt þokkalega úldin, allt, allt of heitt, og illt í bakinu og með harðsperrur.... Og þá er náttúrulega mjög sniðugt að fá sér sjóðheitan hafragraut (hef ekki tíma til að láta hann kólna) og nýlagað kaffi. Maður ætti kannski líka bara að fara í gufubað og fara í dúnúlpu. Þetta er nú meiri vitleysan í manni. Það er bara svo erfitt að venja sig af hafragrautsfíkninni....

Posted by erna at 08:01 FH