Mánudagur, 6 júní, 2005
Geeiiisspiii...

Ég er frekar þreytt, en ekki alveg nógu þreytt til að fara að sofa. Ég las nefnilega greinina sem hann Matti benti á um daginn og finnst hún svo sniðug að nú ætla ég að reyna (hold your breath) að gerast morgunmanneskja.

Reglurnar eru víst þær að maður má aldrei fara að sofa nema maður sé alveg að lognast út af, sama hvað klukkan er. Og svo á maður að vakna á nákvæmlega sama tíma á hverjum einasta morgni, sama hvenær maður fór að sofa. Og, fara á fætur um leið og vekjaraklukkan hringir.

Í augnablikinu er ég líkamlega algerlega lurkum lamin af þreytu, en ekki nógu syfjuð til að sofna. Ég fór í uppáhalds spinning tímann minn, hjá henni Ellen þrusugellu og tók svona svakalega á. Við vorum bara fjórar í tímanum hjá henni og ég held að hinar þrjár hafi verið byrjendur eða eitthvað, því Ellen tók mig alveg fyrir og lét mig gera aukaspretti í endann á nokkrum lögum og eiginlega bara slátraði mér gersamlega. Ég hreinlega skjögraði út úr tímanum. Og ég sem ætlaði að taka því rólega af því að þynnka laugardagsgleðinnar var ekki alveg búin að kveðja. Ég er samt ekki þunn lengur, það er nokkuð ljóst.

ps. Ég er loksins búin að breyta blogginu þannig að ég leyfi nafnlaus komment. Það er náttúrulega ekki hægt að pína fólk til að gefa upp netfang á þessum síðustu og verstu spammtímum. Verst að ég kann ekki að stilla síðuna þannig að fólk geti gefið upp netfang án þess að það birtist á síðunni....

Posted by erna at 11:07 EH