Miðvikudagur, 1 júní, 2005
Ditten og datten

Það er nokkuð ljóst að ég verð að senda eftir vakjúmdælunni frá latínubloggaranum, af því að öll sýnin mín þiðnuðu í dag áður en þau voru orðin alveg þurr.

Mér leiðast pínu bissí vikur, þar sem maður gerir hverja tilraunina á fætur annarri, en engin þeirra leiðir til neinnar niðurstöðu, allt sem er að gerast er á optímíseringar og trobbúlsjúting stiginu. En eftir þessa vikuna ætti ég samt að vera komin með aðstæður til að gera alvöru tilraunir. Júní verður minn mánuður *ahemm*.

Ég fór reyndar á alveg frábæran fyrirlestur í hádeginu, þar sem Leonard Guarente, prófessor við MIT, talaði um Sir2 genið, kaloríuskerðingu og öldrun. Fyrir fimmtán árum síðan ákvað hann venda kvæði sínu í kross, skipta um rannsóknarsvið og fara að rannsaka öldrunarferli gersveppa. Það sem er svo gaman við það er að á þessum tíma, ef einhver hefði reynt að fletta upp orðunum "ageing" og "yeast" á PubMed, hefðu einu niðurstöðurnar verið í sambandi við bjór og vín. Guarente fann hins vegar út að sama genið tengir saman öldrun og efnaskipti í gersveppum, ormum og nú í músum og öðrum spendýrum. Gargandi snilld alveg hreint. Ég er alveg heilluð upp úr skónum af þessum inspírerandi rannsóknum.

Svo fórum við á David Sedaris upplestur í kvöld. Hann var ansi fyndinn kallinn, tók fullt af spurningum úr sal og lék á alls oddi. Eftir upplesturinn fórum við stelpurnar á tælenskan stað í Chelsea og svo bara heim, enda bissí dagur á morgun, litscan og tilraunamennska, svo eitthvað sé nefnt.

Posted by erna at 11:02 EH