Á einhver frostþurrkara handa mér? Eða kannski bara öfluga vakjúmdælu? Það má alveg fylgja með prótókóll fyrir kasein zymógrafíu.
Æji hvað maður er alltaf mikið hressari þegar maður bara drífur sig í ræktina. Það breytir öllu!
Ég er líka svo spennt, ég var að finna svona masala-movie danstíma í líkamsræktarstöðinni minni. Þeir eru reyndar lengst, lengst niðri í bæ, en á miðvikudögum eru tímar klukkan korter yfir átta. Þá get ég unnið til klukkan sjö og samt verið komin tímanlega niður í bæ til að dilla mjöðmunum við smá hindi-popp. Það verður prófað eftir viku. Á morgun er David Sedaris að lesa upp úr bókum sínum í Barnes and Noble, við þangað....