Það er svona hálfgildingsfrídagur í dag. Þess vegna er ég hér og slóra. Nenni ekki alveg á labbið þar sem eiginmaðurinn liggur uppi í rúmi og sefur út. Mig langar að vera heima hjá honum. Það er nefnilega algildingsfrídagur hjá honum.
Helgin var stórfín, við slöppuðum af á laugardaginn og Mörður hjálpaði Eyjó að flytja í gær. Ég var á leiðinni í vinnuna í allan gærdag, en endaði bara niðri í bæ að kaupa mér hlaupaskó.
Annars er ég orðin eitthvað svo gömul. Tók mér tveggja vikna hlaupafrí af því að mjaðmaliðurinn fór eitthvað að bögga mig. Og svo var planið að fara aftur að hlaupa úm helgina og þá tók ristin upp á að mótmæla harkalega. Ekki það að ég sé eitthvað búin að bögga hana með óþarfa hreyfingu undanfarið, oseisei nei. En maður er svosem á fótunum allan daginn í vinnunni.
Ætli ég sé ekki bara komin með ástæðu til að mæta ekki í dag. Ég ætti að hringja inn og segjast vera meidd og ég bara komist ekki. Ahhh.. I wish....