Miðvikudagur, 25 maí, 2005
Svona fer ástin með mann...

Vá, ég trúi því varla sjálf að ég hafi verið með fiðrildi í maganum í dag útaf fótboltaleik. Eins og áður var ég með soccernet uppi á skjánum hjá mér og kíkti á það á mili pípetteringa. Ótrúlegt mál, hvernig þessi leikur gekk fyrir sig!

Því má bæta við að ekki næst í manninn minn. Hann er einhvers staðar niðri í bæ í sigurvímu. Ég vona að hann rati heim þegar víman rennur af honum.

Posted by erna at 07:00 EH