Mánudagur, 23 maí, 2005

Pjúffedí! Það er stund á milli stríða í tilraunamennskunni á meðan ég bíð eftir Westrern Transferinu mínu. Það var frekar erfitt að mæta aftur til vinnu eftir heila helgi í frí með tengdamömmu og Freyju mágkonu og náttúrulega eiginmanninum.

Þær Freyja og Sigga voru hjá okkur í viku og eru nú sennilega á leið út á flugvöll í þessum rituðu orðum. Það var alveg frábært að hafa þær hér hjá okkur og leiðinlegt að kveðja í morgun.

Og nú er tilraunageðbilunin hafin aftur á fúll spítt! Western og Southern en engin Northern, qPCR, IF, IHC og zymógrafía. Tjúllað stuð semsé.

Posted by erna at 05:34 EH