Hvað segir það um mig að ég er með kveikt á Soccernet.com á tölvunni minni og tékka annað slagið á stöðunni á Liverpool-Chelsea?
Mér finnst þetta reyndar massa fínt, sko. Að það sé unnt að tékka svona á stöðu mála án þess að þurfa að hlusta á gargandi fótbotaþuli í leiðinni. Að það sé mögulegt að sjá hvernig leikar standi án þess að þurf svo mikið sem berja einn tuðrusparkandi slána, með hárgreiðslu dauðans, augum.
Ég nefnilega vona það að hann Mörður minn verði glaður og sæll í kvöld, ergó, ég vona að Lifrarpollur hafi betur gegn Skeljasjónum.
Pjúff, ég er eitthvað hæg á mér í dag. Sennilega vegna þess hvað ég er uppdópuð af ofnæmislyfjum. Er að þvo þvott, þarf svo að drífa mig í vinnuna og þaðan beint út á flugvöll, en næstu dagana verð ég á húðnördaráðstefnu í Saint Louis. Stuð! Ég er alla vegana frekar spennt.
Ég er líka löngu búin að finna út hvaða almenningsgarðar eru hlaupavænlegir og svo er eitt safn eða svo sem á að vera svakalega kúl. Ætli maður skelli sér ekki þangað líka!