Sunnudagur, 24 apríl, 2005
The Week, Die Woche, Ugen, Vikan, Veckan

Undanfarin vika gekk ekki þrautalaust fyrir sig. Ég svaf næstumþví ekkert alla vikuna sökum ofnæmis. Ég er að hugsa um að læðast út að nóttu til og höggva niður askana í bakgarðinum. Það tæki örugglega enginn eftir því, það eru venjulega svo mikil læti í bræðralögunum á nóttunni hvort sem er.

Ég átti líka miður skemmtilegan fund með prófessornum mínum á föstudaginn, þar sem hún sakaði mig um vísindalegt hugleysi, vegna þess að ég vildi ekki gera tilraunirnar sem henni finnst að ég eigi að gera. Vísindalegt hugleysi "rassinn á mér" segi ég nú bara, ég sem er að takast á við verkefni sem er 95% óskylt öllu sem er að gerast á labbinu og hef þurft að kenna sjálfri mér næstum því allt sem ég er að gera! Ég held að ofangreindur prófessor sé frekar sek um bleyðuhátt, því að hún er svo lafhrædd við að verja þeim peningum sem til þarf í tilraunirnar okkar og vill því byrja á hálfrössuðum genaveiðiferðum.

En í gær varð lífið svo aftur skemmtilegt, því að við sólsetur á föstudaginn byrjaði passover, þannig að við fórum í hinn árlega seder hjá Josh og Melissu og vinum og vandamönnum, sem í þetta skiptið var haldinn heima hjá Jeph og Shannon. Það var stórfínt alveg, seinniparturinn fór í eldamennsku, þar sem Möðurinn sá um lambalærin. Í ár tóku Piercy hjónin dætur sínar með sér, en ég sat á móti annarri þeirra, sem er sextán ára og alveg frábær unglingur, það var mjög gaman að tala við hana.

Og svei mér þá ef ég er ekki farin að læra sum laganna sem við syngjum, sem er ágætt, því ég er ekkert svakalega góð í að lesa nótur.

Í dag var svo bara vinnudagur og hlaupadagur eftir smá útsofelsi. Ég lék músakvensjúkdómalækni fyrir mýsnar mínar og fór svo heim og hljóp gamla 5 mílna hringinn minn á 56 mínútum. Ekki besti tíminn svosem, en það var agalega fallegt í Central Park í ljósaskiptunum.

Posted by erna at 10:21 EH