Þriðjudagur, 19 apríl, 2005
Þriðjudags"morgun"

Ohh.. ég sofnaði ekki fyrr en þrjú í nótt og vaknaði rétt fyrir tíu. Ég er ekki alveg að meika það að vera búin að koma sjálfri mér í svona einhvern svefnvítahring. Það er svona þegar maður er ekki með fastan vinnutíma, þá er svo auðvelt að sofa bara áfram.

Tærnar á mér eru alveg að fíla góða veðrið þessa dagana. Sokkanotkun hefur minnkað um 70% síðan í síðustu viku, (það er nefnilega erfitt að fara út að hlaupa á sandölum sko, þessvegna eru enn 30% eftir). Kannski maður skelli sér fljótlega bara í fótsnyrtingu, því það er svo gaman!

Ég er aftur farin að taka upp á því að hugsa bara jákvæðar hugsanir á meðan ég er úti að hlaupa/í spinning. Ekki það að neikvæðnin hafi verið að drepa mig fram að þessu, en það er bara svo sniðugt, að ef að ég hugsa bara jákvætt stöff á útihlaupunum, svona eins og hvað þetta sé nú auðvelt og ekkert mál, eða hvað allt eigi eftir að ganga vel hjá mér á morgun í vinnunni, þá bara flýg ég áfram. En um leið og mér dettur eitthvað pirrandi í hug, þá hægi ég ósjálfrátt á mér. Máttur hugans er ótrúlegur. Ég hef reyndar stundað þessa hugarleikfimi síðan ég var um tvítugt, en undanfarna mánuði hef ég ekki gert það mjög meðvitað. Ég held að fólk vanmeti oft andlegu hliðina á spriklinu, hún er alveg jafnmikilvæg og að anda rétt sko.

Í kvöld verður ekkert útihlaup, heldur bara kajakpóló úti í sundlaug. Það verður stuð!

Posted by erna at 10:33 FH