Sunnudagur, 17 apríl, 2005
Hinn fullkomni sunnudagur

Æhji, af hverju eru ekki allir sunnudagar svona? Sól og sumarylur og ekkert til að hafa áhyggjur af.

Ég byrjaði daginn úti í Central park, þar sem ég hljóp 4 mílur í hópi nokkurra þúsunda New Yorkera. Það var ótrúlega fínt bara. Ég var mætt snemma af því að ég átti eftir að sækja örflöguna og númerasmekkinn minn og ég sleikti því sólina í um klukkutíma, horfði á krakkakeppnirnar sem byrjuðu klukkan níu og tók svo þátt í smá upphitun.
Eitthvað var formið ekki alveg upp á sitt besta í þessu hlaupi, ég hljóp hægar en í hinum þremur á árinu. Ekki svo mikið hægar kannski, var sirka tuttugu sekúndum lengur með míluna en ég ætlaði mér. En það kom ekki að sök, garðurinn skartaði sínu fegursta, gul, hvít og bleik blóm um allt, heiðskýr himinn og allir með bros á vör.
Eftir hlaupið dúllaði ég mér svo hægt og rólega heim og fór í sturtu og fékk mér hádegismat. Síðan þurfti ég aðeins að kíkja í vinnuna. Þar var náttúrulega enginn, og ég dreif vinnuna af, skipulagði komandi viku og hélt aftur niðreftir. Ég bara slæptist, fékk mér bubble-tea og sötraði og lét goluna blása um sóvermdar kinnarnar. Síðan lá leiðin út í Riverside Park, þar sem ég fylgdist með Josh og Mo æfa flugukast á meðan ég las um Mary Russell og Sherlock Holmes og þeirra ævintýri.

Það er náttúrulega ekki nokkur dagur fullkominn nema hann innihaldi góðan mat, en ég eldaði þennan líka fína tælenska Masaman kjúklingarétt. Hann átti reyndar að vera með nautakjöti, en þar sem við erum ekki mikið fyrir slíkt, varð kjúllinn fyrir valinu.

Og nú læt ég mig dagdreyma um hlaupaæfingar framtíðarinnar og stórsigra á hlaupavettvanginum (ehemm...). Það eru tvö hlaup framundan, 5K þann 30. apríl og svo 10K þann 22. maí.

Posted by erna at 11:11 EH