Laugardagur, 16 apríl, 2005
Skyldi Sondre vita af þessu?

Hmmm.. this is an interesting piece. Very "American" though. What is bad about holding onto home appliances that an average North-American would have thrown out a long time ago? Is it bad to be less wasteful than the overconsuming Americans? Icelanders could definitely learn something from Norwegians on that issue. But I guess it is true. If you are an American upper middle class person, you are probably better off financially than the average Scandinavian. And that seems to be the perspective that we are seeing here...

Kinda funny though, considering the Scandinavian stereotype of the frugal Norwegian...

ps. Og er det så ikke bare helt i orden at bringe en madpakke på arbejde? Det skulle man tro det var...

Posted by erna at 11:48 EH
Rólegheitadagur

Ég svaf til klukkan hálfellefu í morgun, og það var þokkalega ljúft. Það sem kom mér mest á óvart var að vakna ein í rúminu, en Mörður var kominn fram í stofu. Það kom þó í ljós að þetta átti sér allt sínar eðlilegu skýringar. (Liverpool-Tottenham á pay pr. viev sko...).

Við hjónin erum nefnilega ekki beint hið árrisulasta fólk. Í miðri viku fer Mörðurinn samt á fætur um tveimur tímum á undan mér, eða klukkan sex. Um helgar snýst það svo við og ég fer venjulega fyrr framúr, en ekkert snemma samt.

Ég er búin að hlakka til þess alla vikuna að sitja í stofunni heima og sötra kaffi á laugardagsmorgni. Hreinlega búin að sjá það í hyllingum. Þannig að ég naut þess vel í morgun að drekka kaffið mitt og lesa eina yfirlitsgrein um frumuþroskun í húð á meðan Mörður horfði spenntur á leikinn.

Við vorum síðan svo dugleg að taka til hjá okkur, enda veitti ekki af, og svo röltum við hér út á útimarkaðinn sem var á Broadway og fengum okkur banana og súkkulaðikrep og sleiktum sólina.

Mörður er núna farinn með Josh á einhverja bjórsmökkun niðri í bæ, en ég tek því bara rólega. Bókaði mig á hótel og í flug til St. Louis í byrjun mæ, þar sem ég fer á dermatólógíuráðstefnu og gerði skattskýrsluna mína (já, ég veit, einum degi of seint, en hvað með það?) og núna er ég að reyna að ákveða hvað ég ætla að elda í matinn næstu daga svo ég geti farið út í búð að versla.

Planið í kvöld er svo að elda pasta og karbó-lóda fyrir 4 mílna hlaupið í fyrramálið. (Eh.. góð afsökun fyrir að borða duglega er það ekki!) og hangsa svo bara og lesa vísindagreinar og skipuleggja tilraunir.

Mörður hleypur ekki á morgun af því að hann er með beinhimnubólgu, en ef hann verður ekki of þunnur ætlar hann að mæta á svæðið og hvetja/reka mig áfram.

Ég er ekkert svakalega mótíveruð fyrir þetta hlaup, hef varla hreyft mig í tvær vikur, rétt farið tvisvar út að hlaupa. Ég stefni samt á að gera ekki verr en í síðasta fjögurra mílna hlaupi og drullast þetta á fjörutíu mínútum. Ég held samt að ég þurfi að fara að taka þessar hlaupaæfingar meira alvarlega, sérstaklega ef ég ætla að hlaupa tíu kílómetra í maí.

Ó, ég gleymdi að segja frá hápunkti dagsins: Ég fékk mér skyr sem við erum víst búin að eiga í margar vikur (það gleymdist bara að segja mér frá því), og flatbrauð (sem mamma kom með í haust og ég hef ekki tímt að klára, bara nartað í eina og eina flatköku annað slagið) og oná var reyktur lax frá tengdapabba sem við erum líka búin að eiga slatta lengi inni í frysti. Namm, ég segi ekki annað!

Posted by erna at 07:05 EH