Miðvikudagur, 6 apríl, 2005
Næshh...

Það er að koma vor hérna hjá okkur. Í gær var að minnsta kosti algert vorveður. Mjög þægilegt eftir rigningar helgarinnar. Ég fór niður á aðal kampusinn í klippingu í gær og settist svo bara út á College Walk fyrir framan Low Library og las tvær vísindagreinar. Það var bara alveg óttalega næs að sitja þarna og sleikja sólina og fylgjast með krökkunum út um annað.
Það er líka klikkað veður í dag, spáð 21°C og flottheitum, sól og sumaryl, þannig að ég stefni á að hætta aftur snemma og fara út að hlaupa í góða veðrinu.

Það er hér með kominn vorfiðringur í mig. Ætli maður fari ekki að draga fram línuskautana og svona.

Posted by erna at 09:33 FH